Gæðingamót í Skagafirði

  • 6. júní 2012
  • Fréttir
Gæðingamót í Skagafirði

Skráningargjald í skeiðið verður kr. 1.000,- á Vindheimamelunum. Vegna skeiðkeppni á úrtökumóti hestamannafélaganna í Skagafirði, Léttfeta, Stíganda og Svaða, hefur verið ákveðið að skráningargjald á hvern hest sem tekur þátt í skeiðinu verður kr. 1.000,- Mótið verður haldið á Vindheimamelum sunnudaginn 10. júní nk. og hefst kl. 10:00.

Keppt verður í : B-flokki, barnaflokki, unglingaflokki, ungmennaflokki, A-flokki, og tölti en einnig verða teknir tímar í 100 metra skeiði,150 metra skeiði og 250 metra skeiði.
 
Skráning hjá Fjólu Viktors á netfangið [email protected]  fyrir klukkan 22. miðvikudaginn 6. júní. Skráningargjald á hross er kr. 3.000.- en kr.1.000,- í skeiðgreinum. Greiðist inn á reikning 0161-26-269  kt.6202696979 og senda kvittun á netfangið [email protected]
Ráslisti og dagskrá verður auglýst nánar þegar nær dregur.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link