Hekla og Þórarinn skiptu með sér verðlaunum
28 nemendur voru brautskráðir af hestafræðideildinni á Hólum í dag.
Um hádegi fór fram reiðsýning á vellinum á Hólum og sýndu þar ný útskrifaðir reiðkennarar hesta sína. Að sýningu lokinni voru veitt verðlaun og viðurkenningar. Hekla Katharina Kristinsdóttir hlaut Morgunblaðshnakkinn en þau eru veitt fyrir hæstu einkunn við brautina. Einnig fékk Hekla Landssambandsstyttuna en hún er veitt fyrir bestan árangur í reiðkennslu á reiðkennarabraut. Ástundarhestinn hlaut Þórarinn Ragnarsson en hann er veittur fyrir bestan árangur í reiðmennsku á reiðkennarabraut. Þórarinn fékk einnig Reiðmennskuverðlaun FT.
Hin eiginlega brautskráning fór svo fram síðdegis við hátíðlega athöfn í menningarmiðstöðinni Miðgarði í Varmahlíð. Fráfaranadi rektor Skúli Skúlason brautskráði nemendurna, en var þetta hans síðasta brautskráning. Hann hefur starfað við skólann sem skólameistari og rektor í 13 ár.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH