Góður afrakstur haustsins

  • 30. október 2012
  • Fréttir
Góður afrakstur haustsins

Nemendur hestafræðideildar háskólans á Hólum stóðu fyrir skilasýningu tamningahrossa síðastliðinn laugardag.

Sýndu þá nemendur, sem flestir eru á öðru ári, afrakstur frumtamninga og þjálfunar um 50 hrossa sem þau hafa unnið með frá septemberbyrjun. Var ekki annað að greina en eigendur hestanna hefðu verið ánægðir með vinnubrögð nemendanna, en þau hafa notið handleiðslu þeirra Sigvalda Lárusar Guðmundssonar, Þóris Ísólfssonar, Þorsteins Björnssonar og Heklu Katharínu Kristinsdóttur í vetur. Voru hrossin fyrst sýnd í Þráarhöll, undir beinni lýsingu kennaranna, en tóku síðan nokkra hringi úti á vellinum þar sem þessi mynd var tekin af Bjarka Þór Gunnarssyni á Völvu frá Hólum og Arnari Bjarka Sigurðarsynin á Moldu frá Íbishóli.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link