Sanngjarn sigur
Nú í kvöld fór töltkeppni Meistaradeildarinnar fram í Ölfushöllinni og var það mál manna að þetta hefðu verið ein sterkustu A-úrslit sem haldin hafa verið í deildinni.
Óðinn Örn:
En það var mikil stemmning fyrir töltkeppninni sem fram fór í Meistaradeildinni enda hefur oft verið hart barist í þessari keppni og hún hefur gefið tóninn fyrir keppnisárið sem fram undan er. Margir þekktir hestar voru skráðir til leiks auk nýrra og spennandi hesta. Sem dæmi má nefna Smyril frá Hrísum og Jarl frá Mið-Fossum sem báðir voru í A-úrslitum á LM2012 auk Íslandsmeistarans í tölti frá síðasta ári Storms frá Herríðarhóli.
Svo fór að Viðar Ingólfsson sigraði með talsverðum yfirburðum eftir að hafa átt langbestu sýninguna í forkeppninni. Það voru öll atriði greinilega þaulæfð, hæga töltið hnökralaust og hraðabreytingarnar eins og þær sáust upp á sitt besta þegar Viðar og Tumi voru og hétu. Svo virðist sem Viðar hafi ákveðna sérgáfu í þjálfun hraðabreytinga þó svo að það hafi stundum virst hafa áhrif á frjálsleikann og taktinn á greiðu tölti. En miðað við keppnina í kvöld þá verða þau Vornótt og Viðar skeinuhætt á sumri komandi. Annar varð Íslandsmeistarinn frá því í fyrra Árni Björn á Stormi en það var ljóst fyrir kvöldið að skrefmikill hestur eins og Stormur mundi mögulega eiga erfitt með að sýna sitt allra besta í þröngu rými. Þeir félagar áttu prýðissýningu en eiga þó eftir að stilla betur af höfuðburð og komast fyrir örlitla taktgalla á hægu tölti. Jafnir í 3-4.sæti voru Sigurður Vignir á Kolfinnssyninum Andra frá Vatnsleysu, nýjum keppnishesti sem örugglega á eftir að blanda sér í fremstu röð og Guðmundur Björgvinsson á Hrímni frá Ósi. Svo fór að tveir hestar voru einnig jafnir í 5-6.sæti en það voru þeir Hinrik og Smyrill frá Hrísum sem komu í öðru sæti inn í úrslit og Ragnar Tómasson á mýktarhestinum Sleipni frá Árnanesi. Ragnar sýndi frábæra reiðmennsku í kvöld og leysti verkefni kvöldsins frábærlega þó svo augljóst væri að Sleipnir er mikill viljahestur. Sjöundu urðu Þorvaldur Árni og Stjarna frá Stóra-Hofi sem komu inn í þriðja sæti en hraðabreytingarnar í úrslitunum urðu til þess að þau blönduðu sér ekki í baráttu þeirra bestu. Áttundu voru svo Jakob og Eldur frá Köldukinn.
Ljóst var frá upphafi að dómarar hugðust ekki liggja á stóru tölunum en það voru þau Sigursteinn Sumarliðason á Skjönn frá Skjálg sem riðu á vaðið. Hæga töltið hjá þeim var gott en eftir það kom talsverður losarabragur á sýninguna og ljóst er að þau verða að stilla sig talsvert betur af ef þau eiga að verða gjaldgeng í fremstu röð töltara líkt og Sigursteinn og Alfa. Uppskáru þau 7,17 í einkunn fyrir þessa sýningu sem telja má vel gefið. Þarna var tónninn settur fyrir dómgæslu kvöldsins. Eftir þeim var röðin komin að Hrímni og Guðmundi sem áttu hnökralitla sýningu sem skilaði þeim beint í A-úrslit. Það sama má segja um Jakob S. Sigurðsson og Eld frá Köldukinn og líklegt að þeir geti blandað sér í baráttu þeirra bestu á komandi keppnistímabili þó svo ólíklegt megi telja á þessum tímapunkti að þeir skáki þeim allra bestu.
Ekkert er hægt að gefa sér fyrir fram í harðri keppni sem þessari en samt mátti líklegt telja að Sigurbjörn á Jarli og John Kristinn á Tóni yrðu líklegir til að skipa sér í fremstu röð enda varð John Kristinn annar í fyrra með glæsilega sýningu og Diddi og Jarl eitt af reyndustu pörum töltkeppninnar í kvöld. Jarl var nýrakaður í prýðisformi sem dugði þó samt ekki í úrslit. Tónn var talsvert langt frá því sem hann var í fyrra, hann var undir bitanum á hægu tölti og óstöðugur í öðrum atriðum.
Það er umhugsunarvert eftir kvöldið í kvöld hvort rétt væri að setja takmörk á hve mörg hross megi ríða A-úrslit. Svo fór í kvöld að sex hross unnu sér beint rétt í A-úrslit og svo voru þeir Sigurður Vignir og Ragnar Tómasson jafnir eftir B-úrslit. Þá var það svo komið að átta pör höfðu rétt á að ríða A-úrslit en flestum var ljóst að keppnisvöllur eins og í boði er innandyra er vart boðlegur fyrir svona mörg hross. Enda fór svo að kös myndaðist og þá helst á yfirferðartöltinu. Fyrir utan það hve erfitt það hlýtur að vera að dæma svona mörg hross þá hljóta allir að gera sér grein fyrir þeirri slysahættu sem hlotist getur af því að dengja saman svo mörgum hrossum saman í einu. Það hlýtur að vera ábyrgðarhlutur fyrir framkvæmdaaðila þessarar annars frábæru keppni að endurskoða þetta svo ekki fari illa. Það skal tekið fram að reglur íþróttakeppninnar segja svo til að þetta skuli gert svona en spurning er hvort ekki verði að setja sérreglur fyrir aðstæður sem þessar.
Það er ljóst af keppni kvöldsins að við hestunnendur megum eiga von á fjörugu og spennandi ári í töltkeppninni nú í ár og víst að hart verði barist um flesta titla í töltkeppnum sumarsins.
| Sæti | Keppandi | Heildareinkunn | ||||
| 1 | Viðar Ingólfsson / Vornótt frá Hólabrekku | 8,89 | ||||
| 2 | Árni Björn Pálsson / Stormur frá Herríðarhóli | 8,44 | ||||
| 3-4 | Sigurður Vignir Matthíasson / Andri frá Vatnsleysu | 8,22 | ||||
| 3-4 | Guðmundur Björgvinsson / Hrímnir frá Ósi | 8,22 | ||||
| 5-6 | Ragnar Tómasson / Sleipnir frá Árnanesi | 8,06 | ||||
| 5-6 | Hinrik Bragason / Smyrill frá Hrísum | 8,06 | ||||
| 7 | Þorvaldur Árni Þorvaldsson / Stjarna frá Stóra-Hofi | 8,00 | ||||
| 8 | Jakob Svavar Sigurðsson / Eldur frá Köldukinn | 7,78 | ||||
| 9 | Olil Amble / Kraflar frá Ketilsstöðum | 7,67 | ||||
| 10 | Ólafur Ásgeirsson / Stígandi frá Stóra-Hofi | 7,33 | ||||
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH