Fyrstu tjaldbúarnir mættir í Víðidal
Landsmótssvæðið er að taka á sig hátíðlega mynd. Búast má við að þátttakendur komi sér og fákum sínum fyrir um helgina en knapafundur fer fram á sunnudagskvöld kl. 18. Mótið hefst svo stundvíslega kl. 8 á mánudagsmorgun þegar elsti flokkur hryssna mætir til dóms á kynbótavelli. Fyrstu keppendur ríða svo inn á Hvammsvöll kl. 9 en gæðingakeppnin hefst á B-flokki.
Þegar Eiðfaxi brá sér í Víðidal í dag blasti þar við ánægjuleg sýn – fyrstu tjaldbúar hátíðarinnar hafa komið sér fyrir. Af langtímaveðurspám að dæma virðist ekki ætla að væsa um þá og aðra landsmótsgesti því veðurstofan spáir skýjuðu en myldu veðri, vætulausu og smá golu í næstu viku.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH