Opið gæðingamót Sleipnis
Opið Gæðingamót Sleipnis, Ljúfs og Háfeta mun fara fram helgina 1-3 júlí, þetta er jafnframt úrtökumót þessara félaga fyrir landsmót í Reykjavík. Samhliða þessu móti hefur gæðingamótsnefndin í samstarfi við skeiðfélagið ákveðið að hafa skeiðleika fimmtudagskvöldið 31.maí þar sem rafræn tímataka mun fara fram í 250, 150 og 100 metra skeiði. Á laugardeginum verður svo töltmót í boði Netparta ehf en 100.þúsund króna verðlaunafé verður fyrir þann sem hlýtur efsta sætið. Um að gera fyrir fólk sem þarf að ná sér í punkta í tölti fyrir landsmót að skrá sig til leiks. Skeiðgreinarnar á fimmtudagskvöldinu eru einnig góður vettvangur til að ná sér í tíma á skeiðhrossinn fyrir komandi landsmót.
Nánar verður auglýst síðar um skráningar á mótið
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH