Sigríður Bjarnadóttir sæmd starfsmerki UMFÍ og UMSE
“Uppskera hestamanna fór fram á 92. ársþingi Ungmennasambands Eyjarfjarðar (UMSE) sem haldið var sl. laugardag að Valsárskóla á Svalbarðsströnd. Á ársþinginu var Sigríður Bjarnadóttir sæmd starfsmerki UMFÍ og einnig starfsmerki UMSE en Sigríður hefur staðið vel að starfi Barna- og unglingaráðs hestamannafélagsins Funa sem formaður ráðsins. Agnar Snorri Stefánsson hestamannafélaginu Hring var kjörinn íþróttamaður UMSE en Anna Kristín Friðriksdóttir hestamannafélaginu Hring var tilnefnd af hálfu stjórnar UMSE til kjörs um íþróttamann UMSE. Hestamannafélagið Hringur hlaut Félagsmálabikar UMSE.
Um ársþingið má lesa á heimasíðu Hrings,“ segir í tilkynningu frá UMSE
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH