Olil Amble Íslandsmeistari í fimmgangi
Úrslitin í fimmgangi meistara voru mögnuð en alls voru níu hestar á vellinum og því nóg að gera fyrir áhorfendur og dómara að ná að fylgja öllum hestum.
Olil Amble er íslandsmeistari í fimmgangi meistara á Álfarni frá Syðri-Gegnishólum og er einkunn þeirra 7,67. Silfur féll í skaut Jakobs Svavars Sigurðsson og er hestur hans Skrúður frá Eyri einkunnin 7,60, brons hlaut Eyrún Ýr Pálsdóttir og Hrannar frá Flugumýri II með 7,55 í einkunn.
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Olil Amble / Álfarinn frá Syðri-Gegnishólum 7,67
2 Jakob Svavar Sigurðsson / Skrúður frá Eyri 7,60
3 Eyrún Ýr Pálsdóttir / Hrannar frá Flugumýri II 7,55
4 Sina Scholz / Nói frá Saurbæ 7,40
5 Gústaf Ásgeir Hinriksson / Sproti frá Innri-Skeljabrekku 7,38
6 Þórarinn Eymundsson / Vegur frá Kagaðarhóli 7,29
7 Hinrik Bragason / Byr frá Borgarnesi 7,17
8 Mette Mannseth / Kalsi frá Þúfum 7,14
9 Sigurður Vignir Matthíasson / Tindur frá Eylandi 6,98
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH