Ístölt mót Gnýfara
Ístölt mót hestamannafélagsins Gnýfara verður haldið laugardaginn 11. febrúar á Ólafsfjarðarvatni. Keppt verður í tölti og 100 metra skeið.
„Peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin í tölti og skeiði og ekkert skráningargjald. Hægt er að skrá sig á netfangið [email protected] og [email protected], fram þarf að koma nafn, aldur, faðir og móðir, upplýsingar um mótið eru veittar í síma 8670251,“ segir í tilkynningu frá mótanefnd félagsins.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson