Ferðir á HM2013 renna út eins og heitar lummur

  • 4. júní 2012
  • Fréttir

Rúna Einarsdóttir Zingsheim á Frey frá Nordsternhof. Myndin er tekin á HM2009 í Sviss.

Landslið Íslands fær hluta af hverri ferð sem keypt er

Landsliðsnefnd Landssambands hestamannafélaga hefur, í samvinnu við Úrval –Útsýn, sett saman ferð á HM2013 í Berlín. Af hverri seldri ferð rennur hluti til íslenska landsliðsins svo þeir sem bóka þessa ferð eru beinir þátttakendur í þeirri fjáröflun sem nú fer fram vegna landsliðsins okkar.

Ferðin er frá 05. ágúst til 12. ágúst, flogið beint á Berlín, gist á hótel Estrel, sem er fjögurra stjörnu  hótel í Berlín og er í 7 km fjarlægð frá mótsstað.  Á vellinum erum við með miða í yfirbyggðri stúku á besta stað á vellinum.

Ýmislegt verður í boði fyrir okkar farþega á mótsstað og á hóteli  en  m.a. verður farið yfir horfur og framvindu mótsins með skemmtilegum spekingum, móttökuteiti og fleira þess háttar.  Nánari dagskrá verður auglýst síðar.

Verðið á mann er 194.500 kr og innifalið í því er flug, skattar, akstur, miðar í yfirbyggðri stúku sem gilda alla vikuna, gisting á Hótel Estrel með morgunmat, síðar auglýst dagskrá og ýmsar lokaðar uppákomur, skoðunarferð um Berlín og íslensk fararstjórn.

Óhætt er að segja að viðtökur hafi verið frábærar og er landsliðsnefnd LH sannarlega þakklát fyrir hönd landsliðsins okkar og þetta mun létta starfið við undirbúning liðsins.

Nokkur sæti eru enn laus í þessa ferð og hægt að bóka á netinu á www.urvalutsyn.is eða hafa samband við skrifstofu Úrval-Útsýn í Lágmúla 4, s. 585 4000.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link