Nefnd um hæfniviðmið
Síðastliðið vor var að störfum nefnd sem skipuð var af Mennta- og menningarmálaráðuneyti. Markmið nefndarinnar var að greina lærdómsviðmið í hestamennsku og raða á hæfniþrep. Fyrsta skrefið í starfi nefndarinnar var að skoða hvernig nemendur í hestafræðinámi eru undirbúnir fyrir tiltekin störf í atvinnulífi, framhaldsnám í hestamennsku eða fyrir hestamennsku sem áhugamál.
Nefndin hefur nú þegar skrifað ítarleg hæfnisviðmið til skoðunar og umsagnar fyrir þær starfsgreinar og hagsmunaaðila sem tilheyra hestamennskunni s.s. tamningastöðvar, reiðskóla og ferðaþjónustuaðila og fara tillögurnar til umfjöllunar hjá þessum aðilum á næstu vikum. Við mótun hæfniviðmiðanna eru Knapamerkin og uppbygging þeirra meðal annars notuð til að byggja upp þann ramma sem notaður er til að skilgreina hæfniviðmið í hestamennsku og hestatengdu námi. Lokahnykkurinn á starfi nefndarinnar verður síðan að skila tillögunum til Mennta- og menningarráðuneytis nú í haust. Hæfniviðmiðin verða síðan notuð til að móta áfram nám í hestamennsku, til dæmis á framhaldsskólastigi.
Í nefndinni sitja Guðríður Helgadóttir sem er formaður og tilnefnd af Starfsgreinaráði, Helga Thoroddsen, tilnefnd af Háskólanum á Hólum, Magnús Lárusson, tilnefndur af Fjölbrautaskóla Suðurlands, Guðjón Magnússon frá Hestamannafélaginu Herði og Guðrún Guðjónsdóttir frá Fjölbrautaskólanum í Mosfellsbæ.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH