Söluhross á landsmóti-

  • 25. júní 2012
  • Fréttir
Söluhross á landsmóti-

Gæðingar munu ganga kaupum og sölum í Víðidal í vikunni. Um hundrað söluhross koma fram á sölusýningum á kynbótavelli föstudaginn kl. 13.30, laugardag kl. 15.30 og á sunnudag kl. 16.

Tóllf söluaðilar hrossa standa að sölusýningum og ætla þeir að fylla þrjú stór hesthús í Víðidal af úrvalsreiðhrossum og kynbóta- og keppnishrossum. Fjölmargir fyrstu verðlauna stóðhestar eru þar á meðal.

Áhugasamir geta komið við í hesthúsunum Faxabóli 1, 3 og 7 þar sem öll hrossin verða til sýnis og jafnvel prófað nokkra vænlega gripi.

Söluhrossin eru kynnt hér á fésbókinni.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link