Vetrarmótaröð Grana – fjórgangur
Nú er að hefjast vetrarmótaröð hestamannafélagsins Grana. Hún hefst á fjórgangi sem haldinn verður næstkomandi fimmtudag, 11. febrúar klukkan 18.00 í reiðhöllinni á Mið-Fossum.
Keppt verður í 1. flokki, 2. flokki og svokölluðum þrígangi sem lýsir sér þannig að riðið er fet, brokk og tölt.
Skráning á mótið þarf að berast fyrir klukkan 21.00 á miðvikudagskvöldið 10. febrúar. Tekið verður við þeim á [email protected].
Koma þarf fram:
Nafn knapa.
Flokkur sem keppt er í.
Nafn hests.
Litur.
Hönd sem riðið er uppá.
Skráningargjöld borgast á staðnum í reiðufé.
Frítt er inn fyrir áhorfendur og hvetjum við sem flesta til þess að koma og fylgjast með þessu skemmtilega móti! 🙂
Kveðja,
Stjórn Grana.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH