Davíð Ólafsson veislustjóri á Uppskeruhátíð

  • 21. október 2010
  • Fréttir
Davíð Ólafsson veislustjóri á Uppskeruhátíð

Uppskeruhátíð Landssambands hestamannafélaga verður haldin þann 6.nóvember nk. á Broadway…

Miðasala fer fram á Broadway, Ármúla 9, 108 Reykjavík, s: 533-1100 og á netfanginu: [email protected]

Hátíðin verður með hefðbundnu sniði, þ.e. þriggja rétta glæsilegur málsverður, veitt verða knapaverðlaun, skemmtidagskrá og dansleikur fram eftir nóttu þar sem Helgi Björns mun trylla lýðinn.

Veislustjórn verður í höndum hins landskunna Davíðs Ólafssonar, undrabassa og skemmtikrafts.
Verð fyrir matinn og ballið er 7.500kr. en 2500kr. bara fyrir ballmiða.

Það er ljóst að hestamenn ætla að fjölmenna á Uppskeruhátíðina sem haldin er af Landssambandi hestamannafélaga.

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link