Áfall fyrir hestamennskuna

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Landsliðsmaður smyglar notuðum reiðtygjum

Valdimar Bergstað, landsliðsmaður í hestaíþróttum, á yfir höfði sér kæru vegna innflutnings á  notuðum og skítugum reiðtygjum og reiðfatnaði frá útlöndum. Reiðtygin fundust við tollskoðun í gámi í gær. Fundurinn er mikið áfall fyrir hestamennskuna. Grunur manna um að atvinnumenn í hestamennsku sem ferðast til og frá landinu fari ekki nægilega gætilega virðist því miður á rökum reistur.

Tilfellið sem hér um ræðir er grafalvarlegt. Engin tilraun virðist hafa verið gerð, hvorki til að hreinsa reiðtygin, né bílinn sem þau fundust í, en hann er einnig ataður hestamóðu. Haraldur Þórarinsson, formaður Landssambands hestamanna, segir að ef MAST kæri ekki tilvikið muni LH gera það. Þetta sé stórkostlegt gáleysi og vanvirðing við íslenska hestinn, ekki síst vegna þess að um sé að ræða landsliðsmann í hestaíþróttum, sem eigi að gjörþekkja þá hættu sem af slíku getur hlotist. Haraldur segist ekki geta svarað því að svo stöddu hvort þetta tilvik muni hafa áhrif á keppnisrétt og landsliðsþátttöku Valdimars í framtíðinni.

Eftirfarandi tilkynning var birt á www.mast.is í dag: Notuð reiðtygi og óhreinn reiðfatnaður fundust í gær við tollskoðun á bíl sem var að koma erlendis frá með gámaflutningaskipi. Bíllinn sem er með íslenskt skráningarnúmer var einnig mjög óhreinn og var greinilega að koma beint úr umhverfi hesta. Um er að ræða brot á lögum um dýrasjúkdóma og vörnum gegn þeim, þar sem skýrt er kveðið á um bann við slíkum innflutningi.  

Matvælastofnun lítur málið mjög alvarlegum augum enda hefði innflutningurinn falið í sér mikla hættu á að nýr smitsjúkdómur bærist í íslenska hrossastofninn eða aðrar dýrategundir. Furðu sætir að svo gróf tilraun sé gerð til að smygla notuðum reiðtygjum og óhreinum reiðfatnaði til landsins í ljósi þess að íslensk hrossarækt og hestamennskan öll hefur orðið fyrir miklum skakkaföllum vegna faraldurs smitandi hósta á þessu ári.

Í tengslum við það áfall hefur verið hamrað á reglum um sjúkdómavarnir og hinar alvarlegu afleiðingar smitsjúkdóma í hrossum ættu að vera öllum hestamönnum kunnar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link