Þýska meistaramótið hófst í gær
Karly Zingsheim og Náttrún mynd: Neddenstierfoto/Isibless
Þýska meistaramótiðhófstí gær þegar forkeppni í tölti T1 fór fram auk keppni í gæðingaskeiði.
Alls tóku 46 knapar þátt í töltinu og voru einkunnir frá 5,23 og upp í 8,30. Efstur að lokinni forkeppni er Karly Zingsheim á Náttrúnu vom Forstwald en einkunn hans er 8,30. í öðru sæti er Sys Pilegaard á Abel fra Tyrevoldsdalmeð 8,13 og í því þriðja Lisa Drath á Kjalari frá Strandarhjáleigu með 8,07.
Niðurstöður í tölti má skoða með því að smella hér
Eins og áður segir að þá fór keppni gæðingaskeiði einnig fram í gær og þar stóð efst Vicky Eggertsson á Salvör vom Lindenhof með 8,42 í einkunn. Beggi Eggertsson varð bæði í 2 og 3 sæti en hann og Besti frá Upphafi hlutu 8,33 í einkunn og þá hlaut hann 8,21 í einkunnn á Dynfara frá Steinnesi.

Vicky Eggertsson og Salvör vom Lindenhof mynd: Neddenstierfoto/Isibless
Niðurstöður í gæðingaskeiði má skoða með því að smella hér
Keppni heldur áfram í dag en nú fer fram keppni í slaktaumatölti og svo seinni partinn er það keppni í 250 metra og 150 metra skeiði.
Hægt er að kaupa sér aðgang að beinnin útsendingu með því að smella hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH