Þýska meistaramótið – Lisa Drath heldur áfram að gera það gott
Lisa Drath er þýskur meistari í samanlögðum fjórgangsgreinum á Kjalari frá Strandarhjáleigu mynd: Neddenstierfoto/Isibless
Það var mikið um að vera í dag á þýska meistaramótinu en helstu keppnisgreinar dagsins voru forkeppni í fimmgangi og b-úrslit í tölti. Á morgun er svo úrslitadagur auk þess að keppt verður í 100 metra skeiði.
Lisa Drath heldur áfram að gera góða hluti á mótinu en hún er bæði í 1 og 2 sæti í fimmgangi að lokinni forkeppni. Hún er með þá Byr frá Strandarhjáleigu og Bassa frá Efri-Fitjum jafna með einkunnina 7,10. Lilja Thordarson gerði einnig góða hluti en hún er bæði í 3 og 4 sæti á þeim Eldi og Skúla frá Árbæjarhjáleigu II.
Öll úrslit í fimmgangi má nálgast með því að smella hér.

Lisa og Byr frá Strandarhjáleigu mynd: Neddenstierfoto/Isibless
Lisa gerði sér einnig lítið fyrir og er þýskur meistari í fjórgangsgreinum á Kjalari frá Strandarhjáleigu.
Steffi Svendsen ávann sér þátttökurétt í A-úrslitum í tölti þegar hún stóð efst í b-úrslitum á Sjóla von Teland með einkunnina 7,44.
Hægt er að kaupa sér aðgang að beinni útsendingu með því að smella hér.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH