Oddur orðinn Íslandsmeistari
Þá er fyrstu A-úrslitum dagsins lokið en Oddur Ólafsson varð Íslandsmeistari ungmenna í slaktaumatölti. Oddur var á henni Lyftingu frá Þykkvabæ en þau sigruðu nokkuð örugglega en fengu 7,08 í einkunn.
Næst á dagskrá eru a úrslit í slaktaumatölti unglinga.
Niðurstöður úr a úrslitum:
Sæti Keppandi
1 Oddur Ólafsson / Lyfting frá Þykkvabæ I 7,08
2 Agnes Hekla Árnadóttir / Gammur frá Skíðbakka III 6,75
3 Sara Rut Heimisdóttir / Gáta frá Álfhólum 6,71 H
4 Edda Rún Guðmundsdóttir / Þulur frá Hólum 6,71 H
5 Gylfi Björgvin Guðmundsson / Eldur frá Þórunúpi 6,17
6 Andri Ingason / Máttur frá Austurkoti 5,33
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH