Samningar undirritaðir á næstunni
,,Það er virkilega ánægjulegt að þetta mál sé í höfn. Ég er sannfærður um að Landsmót á Hólum í Hjaltadal, þar sem æðstu menntastofnun íslenska hestsins í heiminum er vistuð, mun verða glæsilegt mót og nýtast hestamönnum í nútíð og framtíð vel. Ég er viss um að Skagfirðingar munu taka vel á móti okkur eins og þeim er lagið,” segir Lárus Ástmar Hannesson, formaður LH, í tilkynningu.
Á fundi stjórnar Landssambands hestamannafélaga sem haldinn var í dag, föstudaginn 6. mars 2015, var ákveðið að Landsmót hestamanna verður haldið á Hólum í Hjaltadal sumarið 2016. Landsmót hestamanna ehf. og Gullhylur ehf. munu á allra næstu dögum undirrita samning um mótshaldið.
Þann 19. desember 2014 skrifuðu Landssamband hestamannafélaga, Gullhylur ehf., Sveitarfélagið Skagafjörður og Hólaskóli undir viljayfirlýsingu um að halda Landsmót hestamanna á Hólum í Hjaltadal sumarið 2016.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH