Hesta-Vísur

  • 9. október 2020
  • Fréttir

Forsíðumynd á Jólahefti Hestsins Okkar árið 1962. Myndina tók Viðar Pétursson tannlæknir á rótarsandi á leið frá Hlöðufelli í Brúarskörð

Skáldskapargleði hefur löngum fylgt  landsmönnum og þá sérstaklega hesthneigðu fólki. Því er ekki úr vegi á þessum ágæta föstudegi, að rifja upp nokkrar hestavísur sem birtust í jólahefti Hestsins Okkar árið 1962. Þórður Kristleifsson kennari á Laugarvatni samdi eftirfarandi vísu um Skjóna – Bjarna á Laugarvatni:

Sýður, brennur fáksins fjör,
fágað yndis-sporið
fríður rennur, ólmur, ör
undir kyndir þorið.

Kristinn Árnason á Finnsstöðum í Köldukinn yrkir um hestinn sinn Gráfeld og hundinn Lappa:

Hjá Lappa og Gráfeld leið mér best,
og líka af því stafar,
að ég þarf bæði hund og hest,
hinumegin grafar.

Þegar ég hress og ferðafær,
í fleyg hef blessað nesti,
er mér sessinn alltaf kær
upp á þessum hesti.

Þótt ég dáinn drottni hjá
dvölina fái besta
mun ég þrá að mega sjá
mína gráu hesta.

Þegar komið var að leiðarlokum kvaddi Jón Haraldsson á Einarsstöðum í Reykjadal, hryssuna Rák, með þessari vísu:

Hér við dauðans hinstu skák
huldir dómar falla
þúsundfalda þiggðu Rák,
þökk fyrir spretti alla.

og síðast vísan sem við birtum nú er eftir Sigurjón póst Sumarliðason sem hann orti þegar síðasti pósthesturinn hans féll:

Aftur seinna ég þig finn
þá úti er lífsins brýna.
Félögum þínum, fákurinn,
færðu kveðju mína.

 

Við hjá Eiðfaxa höfum mikinn áhuga á því að birta ljóð um hesta og allt þeim tengdum í tímaritum okkar. Allir þeir sem vilja leggja því lið mega senda vísur á netfangið [email protected] ásamt höfundi og smá texta um tilurð vísunnar.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link