Kristín tekur við formennsku í Sörla
Atli Már Ingólfsson fráfarandi formaður Hestamannafélagsins Sörla
Tímamót urðu á nýliðnum aðalfundi Hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði þegar Kristín Þorgeirsdóttir var kjörin nýr formaður félagsins. Tekur hún við keflinu af Atla Má Ingólfssyni sem lét af formennsku eftir átta ára farsælt starf. Þetta kemur fram í frétt á vef félagsins.
Kristín er félaginu og starfseminni afar kunnug, en hún hefur setið í stjórn um árabil og gegnt embætti gjaldkera síðastliðin níu ár.
Í frétt á vef Sörla kemur fram að formannstíð Atla Más hafi einkennst af mikilli uppbyggingu, þar sem hæst ber bygging nýrrar og glæsilegrar reiðhallar sem gjörbylt hefur allri aðstöðu félagsmanna. Samhliða mannvirkjagerð hefur námskeiða-, keppnis- og æfingastarf vaxið til muna, sérstaklega hjá börnum og ungmennum. Með Atla Má gengu þeir Kristján Jónsson og Sveinn Heiðar Jóhannesson einnig úr stjórn og voru þeim færðar innilegar þakkir fyrir mikið og óeigingjarnt starf.
Ný stjórn Sörla er þannig skipuð:
Formaður: Kristín Þorgeirsdóttir
Varaformaður: Bryndís Snorradóttir
Gjaldkeri: Lilja Hrund Harðardóttir (ný)
Ritari: María Júlía Rúnarsdóttir
Meðstjórnendur: Arnór Snæbjörnsson, Einar Ásgeirsson (nýr) og Sigurður Júlíus Bjarnason (nýr).
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson