Hestamenn tappa af

  • 6. desember 2010
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
Landsmót verður eitt aðalmál landsþings LH

Tvær ráðstefnur um Landsmót hestamanna verða haldnar í október, ein á Suðurlandi og önnur á Norðurlandi. Þar verða kynntar niðurstöður nefndar sem skipuð var í sumar vegna þeirrar ólgu sem kom upp vegna ákvörðunar Landsmóts ehf. um að halda Landsmót 2012 í Reykjavík.

Haraldur Þórarinsson, formaður LH og stjórnarformaður Landsmóts ehf., segir að á síðasta landsþingi LH, sem haldið var fyrir tveimur árum, hafi hann gefið loforð um að LH myndi standa fyrir virkri umræðu um Landsmótahald hestamanna.

„Á síðastliðnum tveimur árum hefur LH staðið fyrir nokkrum fundum og ráðstefnum víða um land til að kynna og ræða málefni Landsmótanna,“ segir Haraldur. „Þannig að ég held að mér sé óhætt að segja að ég hafi staðið við loforðið. Þessar tvær ráðstefnur í vikunni fyrir landsþing LH á Akureyri eru lokahnykkurinn í þessari umræðu á milli þinga. Ég hef enn ekki séð niðurstöður nefndarinnar, sem var skipuð sérstaklega í sumar, en geri ráð fyrir að þar hafi mál verið tekin skipulega fyrir. Markmiðið með þessum ráðstefnum er að menn komi undirbúnir á landsþing, verði búnir að tappa svolítið af, og að umræða á þinginu um Landsmót verði hnitmiðaðri en ella. Ég geri ráð fyrir að sú umræða verði fyrirferðar mikil á þinginu.“

Landsþing hestamanna verður haldið á Akureyri 22. – 23. október. Umræddar ráðstefnur verða haldnar í vikunni á undan.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link