Tamningaferli Háskólans á Hólum.
Eins og við höfum áður auglýst, mun hestafræðideild Háskólans á Hólum bjóða upp á símenntunarnámskeið fimmtudaginn 21. nóvember nk., undir yfirskriftinni Tamningaferli Háskólans á Hólum. Námskeiðið er ætlað þeim er útskrifast hafa úr hestafræðideildinni , sem og öðrum félagsmönnum í Félagi tamningamanna.
Dagskráin hefst kl 13:00 í Þráarhöllinni, og er í stórum dráttum eins og hér segir, með fyrirvara um smávægilegar breytingar:
13:00 Frumtamningaferlið
14:00 Umræður og hlé
14:30 Grunnþjálfun
15:30 Umræður og hlé
16:00 Þjálfun
16:45 Umræður og hlé
17:00 Lok
Ekki þarf að greiða fyrir þátttöku í námskeiðinu, en hægt verður að kaupa námskeiðsmöppu sem inniheldur kennslugögn. Mappan kostar kr. 1.000.
Einnig verða kaffi og kleinur til sölu á staðnum.
(Athugið að ekki verður unnt að greiða með greiðslukortum).
Vinsamlegast skráið ykkur í þetta eyðublað hér, svo við vitum nokkurn veginn hvað við eigum von á mörgum.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH