Íslandsmót yngri flokka

  • 5. júlí 2011
  • Fréttir
Íslandsmót yngri flokka

Íslandsmót barna, unglinga og ungmenna 2011 fer fram á Mánagrund, félagssvæði hestamannafélagsins Mána dagana 21.-24.júlí. Skráning hefst 4.júlí og fer fram í gegnum tölvupóst og skal senda skráningu á [email protected]. Skráningargjald er kr. 4.500 á hverja skráningu og greiðist við skráningu. Síðasti skráningardagur er 12.júlí. Hægt verður að hringja inn skráningar þriðjudagskvöldið 12.júlí milli 19-22. Símanúmer verða birt síðar.

Koma þarf fram: Nafn og kennitala knapa, auk símanúmers. IS númer hests, keppnisgrein og uppá hvora hönd viðkomandi hyggst keppa. Kreditkortanúmer og gildistími.

Einnig er hægt er að leggja inn á reikning Mána 0121-26-3873  kt.690672-0229.
Staðfestingu á greiðslu verður að senda á sama netfang og skráningar, mikilvægt er að setja í skýringu kennitölu knapa.

Keppt verður í eftirfarandi greinum:
Töltkeppni barna-, unglinga- og ungmennaflokkur       

Fjórgangur barna-, unglinga- og ungmennaflokkur    

Fimmgangur unglinga- og ungmennaflokkur         

Gæðingaskeið unglinga- og ungmennaflokkur                    

Skeið 100m (flugskeið) unglinga og ungmenna       

Fimikeppni A barna- og unglingaflokkur                      

Fimikeppni A2 ungmennaflokkur                                  

Töltkeppni T4 unglinga og ungmenna


Mótsstjóri er Sigurður Kolbeinsson s. 869-3530. Umsjónarmaður hesthúsplássa er Bjarni Stefánsson s.866-0054.

Tjaldsvæði eru við gistiheilmilið Alex http://www.alex.is/forsida.asp  þar er einnig hægt að leigja litla kofa.

Auk þess er tjaldsvæði á Garðskaga  http://www.sv-gardur.is/Ferdathonusta/Tjaldstaedi/



Verið velkomin. Hlökkum til að sjá ykkur.

Mótanefnd Mána

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link