Úrtaka fyrir HM
Það er komin spenna í hestamenn vegna HM2017 í Hollandi og fólk virkilega farið að spá í spilin enda stutt í að fyrstu knapar tryggi sér sæti í liðinu í úrtöku.
HM-úrtaka Landssambands hestamannafélaga verður haldin samhliða opnu íþróttamóti Spretts dagana 8.-11.júní.
Í úrtökunni eru tvær umferðir og fer sú fyrri fram 8.júní en hin seinni fléttast saman við íþróttamótið.
Athugið að í skráningarkerfinu eru þetta tvö mót, bæði WR. Skráning mun hefjast í næstu viku.
Meðfylgjandi er lykill að vali í íslenska landsliðið í hestaíþróttum. Þátttakendur í úrtöku, aðstandendur og hesteigendur eru beðnir um að kynna sér hann vel sem og lög og reglur um keppni.
Landsliðsnefnd LH
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Fjórðungsmót Austurlands á næsta ári