,,Brenn fyrir hestamennskunni í heild sinni“

  • 25. nóvember 2020
  • Fréttir

Guðni ásamt Gunnari bróður sínum á mynd sem birtist í Eiðfaxa fyrir allnokkru og er úr æskulýðsferð Hestamannafélagsins Faxa

Viðtal við Guðna Halldórsson frambjóðanda til formanns LH

Guðni Halldórsson býður sig fram til formanns LH og er annar af þeim aðilum sem er í kjöri til þess starfa á landsþingi hestamanna, sem fram fer um helgina. Blaðamaður Eiðfaxa setti sig í samband við Guðna með það að markmiði að fræðast meira um hann og hans skoðanir á málunum.

Guðni Halldórsson er fæddur árið 1973 og er því 47 ára gamall, hann starfar sem löfgræðingur í fyrirtækjaráðgjöf hjá Íslenskum verðbréfum. Hann er alinn upp á Þverholtum á Mýrum í Borgarfirði þar sem hann sleit barnsskónum.

Guðni hefur verið iðinn við að skrifa greinar í aðdraganda landsþingsins en nánar má glöggva sig á þeim skrifum með því að smella á greinarnar hér fyrir neðan.

Félagsmál eru ekki pólitík

Sýnum okkar rétta andlit

Snúum vörn í sókn

Ég býð mig fram til formanns LH

Hér fyrir neðan eru svör Guðna við spurningum blaðamanns.

  • Hvers vegna býður þú þig fram til formanns LH?
    Það er einhvernveginn bara þannig að á lífsleiðinni er maður stundum staddur á þeim staða að maður brennur fyrir einhverju og ég finn núna að ég brenn fyrir því að láta enn frekar til mín taka í félagsmálum okkar hestamanna og langar að leggja mitt af mörkum. Þessi áhugi hefur undið upp á sig undanfarið eftir að ég kom til starfa við landsliðsnefnd og hellti mér af fullum krafti í það starf.  Ég hef áhuga á því að hjálpa til, breyta og bæta. Koma mínum áherslu málum til leiðar og efla okkar góðu samtök enn frekar.

 

  • Bakgrunnur í hestamennsku?
    Ég hef verið í hestamennsku frá barnsaldri upp í Borgarfirði þar sem ég ólst upp á Þverholtum á Mýrum. Þar þrjóskuðumst við bræður við að stunda okkar hestamennsku við heldur bágbornar aðstæður í gömlum óeinangruðum og vatnslausum bragga, á hrossum sem byggðust upp á hópi 12 trippa sem frændur okkar Jón og Bjarni í Bakkakoti gáfu okkur bræðrum þegar við vorum 5 og 9 ára. Einnig fengum við gefins góðan hest frá fyrrum ábúendum í Þverholtum sem við skiptumst á að ríða fyrstu árin, þangað til trippin voru orðin nógu gömul til að temja og þangað til við gátum keypt hross fyrir fermingapeningana okkar. Svo fengum við Leikni frá Svignaskarði lánaðan frá Skúla í Skarði og Krumma Hákonar og létum hann ganga í stóðinu í tvö ár þegar trippin frá Bakkakoti voru orðin nógu gömul, og þannig hófst hrossaræktin. Ég er fyrst og fremst bara áhuga útreiðarmaður og áhuga ræktandi sem reyni að gera sem mest sjálfur, temja, þjálfa, járna og annað sem til fellur og fer stundum inn á hrigvöll ef þannig liggur á mér, með misjöfnum árangri.

 

  • Bakgrunnur í félagsmálum?
    Ég hef komið að ýmsu hef kannski ekki talist félagsmálatröll hingað til en ég er stjórnarmaður í Karlakóri Kjalnesinga, stofnandi og formaður Kirkjukórs Reynivallaprestakalls og sit í landsliðsnefnd LH en þessi þrjú verkefni hafa verið ansi fyrirferðamikil undanfarin ár og ég er afa stoltur af þeim öllum og því starfi sem ég hef komið til leiðar. Áður var ég í dómaranefnd HÍDÍ, stjórn hestamannafélagsins Faxa í gamla daga, Háskólaráði Háskólans á Bifröst og ýmsu öðru sem dottið hefur inn á lífs leiðinni, en sjaldan sóst eftir frama í félagsmálum, fyrr en kannski nú.

 

  • Hver verða þín helstu forgangsmál náirðu kjöri?
    Nýliðunarmál, markaðs- og kynningarmál greinarinnar, reiðvega- og öryggismál. Mér finnst að það þurfi að vinna að meiri samstöðu og sameiningu á milli okkar hestamanna. Ég er ekki með patent lausn en það þarf að samræma sjónarmið ólíkra hópa innan landsbyggðarinnar hvort sem það er landsbyggð/þéttbýli keppnismenn/áhugamenn. Ég hef drepið á helstu áherslumálum í greinum sem ég hef sent frá mér, en það er þó alls ekki tæmandi upptalning. Fyrst og fremst hef ég áhuga á að efla okkar góðu samtök og gera þau að meira áberandi og öflugri málsvara okkar hestamanna í landinu.

 

  • Hvernig sérðu hestamennskuna þróast á næstu árum og áratugum
    Ég held að hestamennska eigi möguleika á að þróast sem almennara og fjölmennara fjölskyldusport en nú er. Við eigum að geta aukið nýliðun í greininni. Við eigum að gera greinina meira aðlaðandi sem náttúru, útivistar og fjölskyldusport og kappkosta að laða til okkar fleira fólk með markvissri kynningu á þeim möguleikum sem bjóðast í samneiti við þessa stórkostlegu skepnu sem hesturinn okkar er.

 

„Hraðaspurningar“

  • Uppáhaldsstaður á Íslandi – Mýrarnar í Borgarfirði þar sem ég er uppalinn eru einn fallegasti staður í heimi en í dag líður mér best á Kjalarnesinu fagra enda stórkostleg náttúruperla.
  • Lífsmottó – Komdu fram við aðra eins og þú vilt að aðrir komi fram við þig.
  • Sturluð staðreynd um sjálfan þig – Ég hef farið holu í höggi í golfi, en ég prófaði golf í nokkur ár áður en ég komst að því að maður getur ekki verið bæði í golfi og hestamennsku. Allavega ekki ef maður tekur hlutina alltaf alla leið eins og ég geri.
  • Uppáhaldsmatur – Lambakjöt með bernaise
  • Þín fyrirmynd – Allt það stókostlega fólk sem maður hefur verið svo heppinn að kynnast og starfa með á lífsleiðinni en ég er svo heppinn að hafa kynnst mikið af frábæru fólki í leik og starfi. Maður reynir að tileikna sér og læra hið jákvæða í fari fólks sem maður lítur upp til á hverjum tímapunkti í lífinu.
  • Hestamennska er… lífsstíll
  • Ef þú fengir að vera formaður LH í einn dag, hvað er það fyrsta sem þú myndir gera? Ætli ég myndi ekki byrja á að kíkja á vinkonur mínar á skrifstofu LH og fá mér kaffibolla og athuga hvort þær lumi ekki á einhverjum sætindum. Athuga síðan hvort einhvers staðar sé skrifborð sem ég gæti fengið að setjast við.

Guðni Halldórsson mynd: Aðsend

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link