Sýnum okkar rétta andlit!

  • 6. október 2020
  • Fréttir
Grein eftir Guðna Halldórsson

Við sem stundum hestamennsku vitum vel hversu heilbrigt, heilnæmt, skemmtilegt og frábært sport þetta er. Hvernig fjölskyldur sameinast í samneyti við hestana og útiveran og hestamennskan í heild er mannbætandi á svo margan hátt. Við gerum kannski sjálfkrafa ráð fyrir því að öllum öðrum sé þetta ljóst og að við þurfum ekki að huga sérstaklega að kynningu eða ásýnd hestamennskunnar.

Fyrirtæki, stofnanir og samtök vita að ímynd þeirra skipti miklu máli og flest gera ráðstafanir til að hafa áhrif á það hvernig ásýnd þeirra og orðspor er út á við, bæði í fjölmiðlum og almennt.

Það er afar mikilvægt að gerð verði gangskör í markaðs- og kynningarmálum hestamennskunnar og gera markvissar áætlanir um hvernig hlúa skuli að ímynd greinarinnar, bæði út á við og eins gagnvart okkur sjálfum. Á tímum vaxandi samkeppni um tíma og athygli fólks er mikilvægt að huga vel að þessum málum og tryggja að umfjöllun og ímynd verði sanngjörn og rétt og greininni til framdráttar.

Fréttir eru í eðli sínu frásagnir af því sem aflaga fer og því viðbúið að þegar slík mál koma upp þá rati þau í fjölmiðla. Slíkt mun alltaf gerast, líka í öllum íþróttagreinum og þá gildir að vera viðbúin með vel skilgreinda upplýsinga- og viðbragðsáætlun. Á sama tíma gera bæði hefðbundnir fjölmiðlar og samfélagsmiðlar út á að miðla efni á mannlegum nótum en mannekla og tímaskortur kemur oftar en ekki í veg fyrir að þeir sinni málum sem skildi. Þá getur komið sér vel að eiga tilbúið áhugavert efni og skemmtilegar sögur til að koma á framfæri. Því aðgengilegra sem efnið er og auðveldara er að nálgast það, þeim mun meiri líkur eru á að það rati í fjölmiðla!

Í dag er staðan sú að keppnis- og ræktunarmálin fá meginþungann af athyglinni, ef á annað borð hestamennska er til umfjöllunar í fjölmiðlum. Flest erum við þó sammála um að þessi umfjöllun ætti að vera mun meiri og markvissari miðað við þann fjölda sem stundar sportið. Þar þurfum við hestamenn að skoða hvernig við getum gert okkur meira áberandi. Að sjálfsögðu er þessi hlið hestamennskunnar mikilvægt og þarf að vera áfram umfjöllunarefni. Minna hefur hins vegar til þessa verið fjallað um hestamennsku almennt, sem hobby/dægradvöl. Það mætti vissulega reyna að ná meiri umfjöllun og vitund um þau þá hlið hestamennskunar, svo sem uppbyggingu reiðleiða, ferðalög á hestum o.s.frv.

Ég hef sett mig í samband við starfandi almannatengla og markaðsmenn sem hafa verið sammála um að LH þurfi að taka sig verulega á í þessum málum og koma sér upp áætlun. Benti einn á að fyrsta skrefið til að víkka umfjöllun og áherslusvið LH um þessi mál almennt, væri að endurskoða og uppfæra markmið í kynningarmálum þannig að þau nái heildstætt til allra þátta. Setja sér svo vinnulag og aðgerðaráætlun til að ráðast á „fílinn“, bita fyrir bita. Í dag er allt fjölmiðlaumhverfi orðið flóknara með tilkomu samfélagsmiðla. Það er staðreynd að 98% Íslendinga eru á Facebook eða instagram og flestir sem eru að leita að upplýsingum á vefnum nota google og því tengt er yotube og fleiri verkfæri. Það er því mikilvægt að horft sé til allra „fjölmiðla“ þegar þessi mál eru tekin til skoðunar. Við hestamenn eigum líka okkar frábæru hestamiðla og þurfum að hlúa að þeim eins og hægt er og reyna að gera þeim eins hátt undir höfði og okkur er unnt. Við þurfum að reyna að nýta okkur þá þekkingu sem hestablaðamenn búa yfir. Hestamiðlar eru þó í eðli sínu þannig að þeir skrifa fréttir og tilkynningar fyrir hestamenn og eru frábærir sem slíkir en fréttir þeirra ná kannski ekki langt út fyrir raðir okkar hestamanna. En hugsanlega er hægt að samþætta þetta með einhverjum hætti.

Jákvæð ímynd er að mínu mati ein megin forsenda þess að laða fleira fólk að hestamennskunni og samofin því að efla nýliðun í hestamennskunni. Í þessu sambandi er rétt að benda á að önnur stærri sérsambönd innan ÍSÍ hafa flest tekið þessi mál föstum tökum. Til að mynda er starfandi hjá Golfsambandi Íslands sérstakur útbreiðslustjóri íþróttarinnar.

Við hestamenn, með LH í broddi fylkingar, þurfum að gefa þessu málefni sérstakan gaum. Útbúa áætlun um það hvernig við viljum kynna okkur út á við, hvaða ímynd við höfum og hvernig við viljum hafa hana. Ég tel að LH, sem er þriðja fjölmennasta sérsambandið innan ÍSÍ, eigi að ráða til stafa kynningar- og markaðsstjóra. Hann hafi jafnframt það hlutverk að halda utan um nýliðun og útbreiðslu hestamennskunnar. Ég hef komið þessum hugmyndum á framfæri innan LH og Landsliðsnefndar og mun halda áfram að tala fyrir þessu máli sem fomaður samtakanna.

Skrauthólum á Kjalarnesi

Guðni Halldórsson

 

 

 

 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link