Skeiðmót í Hafnarfirði
Næsta laugardag verður Skeiðmót Meistaradeildar VÍS. Í ár verður mótið haldið á félagssvæði Sörla í Hafnarfirði. Mótið hefst klukkan 14:00.
Á mótinu verður keppt í gæðingaskeiði og 150m skeiði. Má gera ráð fyrir mjög harðri keppni þar sem margir af sterkustu skeiðhestum landsins eru skráðir til leiks. Ráslistar verða birtir á morgun fimmtudag.
Aðgangur að mótinu er ókeypis. Því er um að gera fyrir skeiðáhugamenn og áhangendur Meistaradeildar VÍS að fjölmenna í Hafnarfjörð á laugardaginn.
Sala á happadrættismiðum Meistaradeildar VÍS er enn í fullum gangi og er til mikils að vinna því í vinning eru folatollar undir marga af þekktustu stóðhestum landsins. En stóðhestarnir eru eftirfarandi:
- Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu, f.ár 2005, aðaleinkunn 8,28
- Álffinnur frá Syðri-Gegnishólum, f.ár 2007
- Ás frá Ármóti, f.ár 2000, aðaleinkunn 8,45
- Brimnir frá Ketilsstöðum, f.ár 2005, aðaleinkunn 8,33
- Dofri frá Steinnesi, f.ár 2005, aðaleinkunn 8,22
- Frosti frá Efri-Rauðalæk, f.ár 2004, aðaleinkunn 8,26
- Kjarni frá Þjóðólfshaga, f.ár 2000, aðaleinkunn 8,30
- Leiknir frá Vakurstöðum, f.ár 1999, aðaleinkunn 8,28
- Ljóni frá Ketilsstöðum, f.ár 2004, aðaleinkunn 8,26
- Óskar frá Blesastöðum, f.ár 2004, aðaleinkunn 8,22
- Straumur frá Breiðholti, f.ár 2002, aðaleinkunn 8,41
- Sædynur frá Múla, f.ár 2002, aðaleinkunn 8,34
- Sær frá Bakkakoti, f.ár 1997, aðaleinkunn 8,62
- Vilmundur frá Feti, f.ár 2001, aðaleinkunn 8,56
- Þeyr frá Akranesi, f.ár 2001, aðaleinkunn 8,55
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH