Rafræn sýnikennsla fræðslunefndar Fáks

  • 11. desember 2020
  • Fréttir

Arnar Bjarki verður með sýnikennslu ásamt Hjörvari Ágústssyni

Fræðslunefnd Fáks stendur fyrir rafrænni sýnikennslu með gleðiboltunum og reiðkennurunum þeim Arnari Bjarka Sigurðarsyni og Hjörvari Ágústssyni
mánudaginn 14. desember klukkan 20. Í sýnikennslunni verður fjallað um þjálfun hesta í upphafi vetrar og hvað er hægt að gera margt sniðugt
utan reiðhalla. Einnig munu þeir koma inn á mikilvægi jákvæðs viðhorfs í reiðmennsku. Sýnikennslunni verður streymt í gegnum Facebook síðu hestamannafélagsins Fáks.

Hjörvar og Arnar Bjarki í betri fötunum við hátíðlegt tilefni

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link