Skiptar skoðanir um úrskurð Aganefndar
Ari Thorarensen fyrir miðri mynd ásamt konu sinni Ingunni Gunnarsdóttur og gæðingnum Krókusi en knapi hans er Sigursteinn Sumarliðason.
Aganefnd LH birti í gær úrskurð sinn vegna framkvæmda skeiðkappreiða á tveimur mótum síðastliðið sumar. Í stuttu máli hljóðaði úrskurður þessi upp á það að allur árangur á Metamóti Spretts skildi felldur út og mótið því ólöglegt. Í úrskurðinum stendur m.a.
„Fella skuli út allan árangur á Metamóti Spretts sem haldið var dagana 4. til 6. september 2020 úr Sportfeng. Er það gert í ljósi þess að mótsskýrsla sem liggur fyrir af Metamóti er ekki í lögmætu formi og beinlínis röng og nýrri leiðréttri skýrslu hafi ekki verið skilað inn þrátt fyrir áskorun þar um. Mótið teljist því ekki hafa verið löglegt og allur árangur á því felldur út.“
Ari Björn Thorarensen er eigandi og ræktandi stóðhestsins Krókusar frá Dalbæ sem sigraði keppni í 250 metra skeiði á Metamóti og setti um leið besta tíma ársins í heiminum en sá tími er 21,23 sekúndur. Hann er ósáttur við það að allur árangur sé þurrkaður út. „Mér finnst þessi úrskurður aganefndar ósanngjarn gagnvart þeim keppendum sem tóku þátt í þessu móti og fóru í einu og öllu eftir lögum og reglum LH. Mér finnst Hestamannafélagið Sprettur komast heldur auðveldlega frá þessu þar sem ég sé ekki að þeir séu beittir sektargreiðslum og eða einfaldlega bannað að halda mót í einhvern tíma. Þá finnst mér einnig ósanngjarnt að sá knapi sem braut reglurnar komist svo auðveldlega frá borði. Það er jú einu sinni þannig að reglur eru reglur og eitt á yfir alla að ganga.“
Blaðamaður Eiðfaxa hafði samband við Sverrir Einarsson formann Hestamannafélagsins Spretts sem hafði þetta að segja um málið. „Við hjá Spretti erum mjög ósátt við úrskurð aganefndar og munum leita réttar okkar. Mér finnst harðlega vegið að okkar sjálfboðaliðum sem ég tel að hafi farið eftir því sem LH hefur beðið okkur um. Við sendum inn póst þar sem við sögðum frá því að við gætum ekki lagfært mótaskýrsluna og biðluðum til LH um að gera það. Við höfum ekki sagt okkar síðasta orð í þessu máli.“

Sverrir Einarsson formaður Spretts mynd: Facebook síða Spretts
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH