Goðamót Léttis

  • 29. maí 2017
  • Fréttir
Eiðfaxi Image
haldið laugardaginn 3. júní

Goðamót Léttis verður haldið laugardaginn 3. júní. Skráning er hafin á slóðinni http://skraning.sportfengur.com/Skraningkort.aspx?mode=add  og er skráningargjaldið er 2,500 kr. fyrir hverja skráningu nema í pollaflokk en í hann kostar 1000 kr.

Skráningarfresti lýkur á miðnætti miðvikudagsins 31. Maí

Keppt verður í:

Fimmgangur – opinn flokkur (börn – unglingar – ungmenni)

Fjórgangi V1 – börn – unglingar – ungmenni

Tölt T1 – börn – unglingar – ungmenni

Tölt T2 – Opinn flokkur (börn – unglingar – ungmenni)

Tölt T7 – Opinn flokkur (börn – unglingar – ungmenni)

Pollaflokkur – 1000 kr. kostar í pollaflokkinn en í skráningarkerfinu er það „pollaflokkur“ sem ríður sjálfur 1 hring og  „annað“ sem teymt er undir 1 hring.

Æskulýðsnefnd áskilur sér rétt til að fella niður greinar ef ekki næst næg þátttaka í þær. Ef ekki eru fleiri en 5 í grein verður aðeins riðin forkeppni.

Með kveðju, æskulýðsnefnd Léttis

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link