Guðmar Líndal Íslandsmeistari í fjórgangi barna
A-úrslit í barnaflokki voru frábær og ákaflega skemmtileg byrjun á þessum úrslitadegi hér á Íslandsmóti. Guðmar Líndal hélt foyrstu sinni frá því í forkeppni og er íslandsmeistari í fjórgangi barna.
Í öðru sæti varð Guðný Dís Jónsdóttir og Ás frá Hofsstöðum með 6,57 í einkunn. Jöfn í 3-4 sæti voru Elva Rún Jónsdóttir og Kolbrún Katla Sigurðardóttir. Í fimmta sæti varð Matthías Sigurðsson en hann sigraði b-úrslitin í gærdag. Í því sjötta varð Helena Rán Gunnarsdóttir með 6,40.
Framtíðin er björt í hestamennskunni miðað við þessi úrslit.
Fjórgangur Barnaflokkur
Sæti Keppandi Heildareinkunn
1 Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal / Freyðir frá Leysingjastöðum II 6,67
2 Guðný Dís Jónsdóttir / Ás frá Hofsstöðum, Garðabæ 6,57
3-4 Elva Rún Jónsdóttir / Straumur frá Hofsstöðum, Garðabæ 6,47
3-4 Kolbrún Katla Halldórsdóttir / Sigurrós frá Söðulsholti 6,47
5 Matthías Sigurðsson / Caruzo frá Torfunesi 6,43
6 Helena Rán Gunnarsdóttir / Hekla frá Hamarsey 6,40
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH