Fjör í Almannadal

  • 26. maí 2015
  • Fréttir
Úrslit frá Almannadalsmóti Fáks.

Hið árlega Almannadalsmót var haldið á hinu fallega félagssvæði Fáks í Almannadal laugardaginn 23.maí. Mótið var með léttu sniði að vanda og keppt var í tölti og 100 m skeiði. Að móti loknu var grillað í yfirbyggða hringgerðinu og allir kátir og sælir, ekki síst þeir sem voru að keppa í fyrsta sinn.

 

Pollaflokkur

Jón Tjörvi Morthens á Særúnu frá Suður-Bár, grárri, 15 vetra

Karen Thea Theódórsdóttir á Ljúf frá Strandarhöfði, brúnum 23 vetra

16 ára og yngri, minna vanir

1. Lena Dögg Davíðsdóttir á Eyvindi frá Staðarbakka, brúnum, 12 vetra

2. Eygló Hildur Ásgeirsdóttir á Hjaltalín frá Oddhóli, rauðtvístjörnóttum, 12 vetra

3. Íris Embla Jónsdóttir á Prins frá Árbakka, brúnum , 9 vetra

4. Kristín Hrönn Pálsdóttir á Snörp frá Hoftúni, rauðri, 9 vetra

5. Bertha Marín Róbertsdóttir á Karakter frá Kópavogi, jörpum, 16 vetra

16 ára og yngri, meira vanir

1. Ylfa Guðrún Svafarsdóttir á Búa frá Nýjabæ, gráum, 10 vetra

2. Elmar Ingi Guðlaugsson á á Kufli, skjóttum

3. Dagur Ingi Axelsson á Elínu frá Grundarfirði, móálóttir, 22 vetra

4. Auður Rós Þormóðsdóttir á Gyðju frá Kaðalstöðum, grárri 19 vetra

5. Hekla Rist á Sleipni frá Hrafnhólum, svörtum, 24 vetra

6. Kolka Rist á Mola frá Strandarhöfði, brúnum, 10 vetra

Byrjendaflokkur, allur aldur

1. Verena Wellenhofer á Mósu frá Hrafnagili, grárri, 10 vetra

2. Loftur Magnússon á Gremju frá Hvammi, rauðri, 14 vetra

3. Ragnheiður Ásta á Leik frá Lyngheiði 4, rauðstjörnóttum, 6 vetra

4. Margrét Lára Einarsdóttir á Spurningu frá Skarði, brúntvístjörnóttri, 9 vetra

17 ára og eldri, minna vanir

1. Davíð Aron Guðnason á Trú frá Hólaborg, brúnni, 8 vetra

2. Edda S Þorsteinsdóttir á Selju frá Vorsabæ, brúnstjörnóttri, 9 vetra

3. Heiðar Breiðfjörð á Hnokka frá Hamrahóli, brúnum, 12 vetra

4. Begga Rist og Lomber frá Njarðvík, móálóttum, 7 vetra

17 ára og eldri, meira vanir

1. Bjarney Jóna Unnsteinsdóttir á Orku frá Ytri-Skógum, rauðskjóttri, 6 vetra

2. Hlynur Guðmundsson á Vöku frá Miðhúsum, rauðri, 8 vetra

3. Ásta Friðrikka Björnsdóttir á Söndru frá Dufþaksholti, moldóttri, 9 vetra

4. Haraldur Einarsson á Birtu frá Lambanesreykjum, bleikálóttri, 7 vetra

5. Hrefna Hallgrímsdóttir á Penna frá Sólheimum, brúnum, 15 vetra

6. Guðmundur Jónsson á Blika öðrum frá Strönd, rauðskjóttum, 12 vetra

100 metra skeið

1. Erlendur Ari Óskarsson á Ásdísi frá Dalsholti, brúnni 8 vetra

2. Hlynur Guðmundsson á Stússý frá Sörlatungu, jarpvindóttri, 10 vetra

3. Ragnar Hilmarsson á Dóru frá Laugabóli, móálóttri, 9 vetra

4. Guðmundur Jónsson á Læk frá Hraunbæ, brúnskjóttum, 9 vetra

5. Valgerður Sveinsdóttir á Ösku frá Hraunbæ, grárri, 12 vetra

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link