Nestor tamningamanna í Sörla
Reynir Aðalsteinsson er ekki af baki dottinn. Enda drifinn áfram af mikilli tamninga- og kennsluástríðu. Hann lætur sér ekki nægja að vera yfirkennari í reiðmennsku á LBHÍ á Hvanneyri. Þann 16. desember verður hann, ásamt Gunnari syni sínum, með fyrirlestur og sýnikennslu í Sörla í Hafnarfirði. Fyrirlesturinn fjallar um misstyrkt og undirbúning fyrir söfnun. Síðan mun Reynir sýna tvo hesta í reið. Fyrirlesturinn hefst klukkan 19.00. Aðgangseyrir er 1000 krónur. Og á Sörlastöðum er að sjálfsögðu kaffi á könnunni og kökur með.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson