Að bæta líkamsbeitingu á hestbaki
Félag tamningamanna og hestamannafélagið Hörður standa fyrir námskeiði Pílates námskeiði fyrir hestamenn, dagana 13.- 15 mars á félagssvæði Harðar í Mosfellsbæ.
Í tilkynningu segir að námskeiðið sé opið öllum sem vilja bæta reiðmennsku og líkamsmeðvitund og hvetur FT sérstaklega þá sem starfa við þjálfun og/eða reiðkennslu að taka þátt.
Þátttökugjald er 23.000 kr. og er fjöldi þátttakenda takmarkaður. Einnig er í boði að koma og fylgjast með og taka þátt í æfingum og er þá verðið 10.000 kr.
Kennari er Heiðrún Halldórsdóttir. „Hún hefur unnið við tamningar og þjálfun í 14 ár. Árið 2007 byrjaði hún að stunda pilates í californiu. Síðastliðin fimm ár hefur hún unnið með Janice Dulak frumkvöðli Pilates for dressage®. Janice er master Pilates Instructor ásamt því að vera knapi. Hún hefur kennt Pilates for Dressage® í yfir 10 ár út um heim allan,“ segir í tilkynningu en skráning fer fram hjá Heiðrúnu í síma: 847-7307.
Dagská námskeiðsins er eftirfarandi:
13. mars – Föstudagur
- 18:00 Pilates for Dressage® fyrirlestur: Skýrt út hvað pilates er og hvernig það getur hjálpað knöpum. Einnig líkamsbeiting á baki og hvaða áhrif það hefur á hestinn
- 18:40-19:00 Stutt pása og/eða spurningar
- 19:00 – 20:00 Pilates for Dressage® æfingar á gólfi: Kynntar inn fyrstu æfingar og farið í vöðva sem hjálpa ásetu.
14. mars – Laugardagur
- 08.00 – 10.00 Pilates for Dressage® æfingar á gólfi: Aftur farið yfir sömu æfingar og daginn áður auk þess verða gerðar æfingar sem líkja eftir ásetu á baki.
- 10.40 – 12:00 einkatímar á baki 40mín hver, fyrstu tveir knapar.
- 12:00 – 14.00 matarhlé
- 14.00 – 16:00 einkatímar þrír knapar 40 mín hver.
- 16:40 – 20.00 Einkatímar á baki 40 min hver, fimm síðustu knapar.
15. mars – Sunnudagur
- 9:00 – 11:00 Pilates for Dressage® æfingar á gólfi: farið enn betur í það sem gert var daginn áður.
- 11:00 – 12:00 Hádegismatur
- 12:00 – 16:00 Einkatímar á baki 40 min hver, sex fyrstu knapar
- 16:00 – 16:40 Kaffi
- 16:40 – 19:20 Einkatímar á baki 40 min hver, fjórir síðustu knapar
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH