Alger draumur!!-
Hann Þorkell Traustason í Mosfellsbæ hefur ræktað hross í áratugi og er hrossaræktandi af lífi og sál…
Hann átti meðal annars stóðhestinn Kappa frá Hörgshóli og fleiri góða hesta sem Sigurður Sigurðarson þjálfaði og sýndi fyrir hann.
Eiðfaxi var á ferðinni í hesthúsahverfinu í Mosó og sá að Þorkell var að reka til folöld úti í gerði hjá sér.
Þorkell benti strax á fífilbleikt, stjörnótt hestfolald og sagði: „Hann verður góður þessi. Hann er hreyfingafallegur og myndarlegur og svo er hann alveg eins á litinn og pabbi sinn, hann Ómur frá Kvistum. Ég skýrði hann í draumi og hann fékk þessvegna nafnið „Draumur“
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH