Ályktun frá fundi hagsmunaaðila í hestamennsku
Fundur hagsmunaaðila í hestamennsku, sem haldinn var fimmtudaginn 24.06.2010, lýsir yfir stuðningi við starf dýralæknis hrossasjúkdóma hjá MAST og Keldur, tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum, í baráttu þeirra við að greina sjúkdóm þann sem herjar á íslenska hrossastofninn.
Jafnframt skorar fundurinn á MAST að auka upplýsingaflæði um stöðu rannsókna tengdum þessum sjúkdómi.
Haraldur Þórarinsson, formaður LH
Kristinn Guðnason, formaður FHB
Sigrún Ólafsdóttir, formaður FT
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH