Þriðju Skeiðleikar sumarsins
Þriðju skeiðleikar Baldvins og Þorvaldar sumarið 2019 verða haldnir á Brávöllum á Selfossi miðvikudagskvöldið 24.júlí.
Skráning er í gegnum Sportfeng þar sem velja þarf Skeiðfélagið sem aðildarfélag Skráningarfrestur er frá og með kvöldinu í kvöld fram á mánudaginn 22.júlí
Nú eins og undanfarinn ár er keppt í stigakeppni sem nær yfir allt keppnistímabilið.
Til mikils er að vinna í heildarstigakeppninni þar sem hestavöruverslunin Baldvin og Þorvaldur gefur stigahæsta knapa ársins 100.000 kr gjafabréf í verslun sína.
Heildarsigurvegari skeiðleika vinnur einnig farandbikar sem gefinn er af Gunnari Arnarssyni og Kristbjörgu Eyvindsdóttur til minningar um Einar Öder Magnússon
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH