Boðið upp á keppnisnámskeið í vetur
Boðið verður upp á keppnisnámskeið í vetur. Sylvía Sigurbjörnsdóttir verður með keppnisnámskeið fyrir unglinga, ungmenni og fullorðna en Sif Jónsdóttir fyrir börnin.
Keppnisnámskeið fyrir yngri knapa (barnaflokkur 10-13 ára )
Hefst 4. febrúar 2013. (kennsludagar: 4/2,11/2, 18/2, 25/2, 4/3, 11/3, 18/3, 25/3
Kennt verður á mánudögum frá kl. 16.00. Þetta eru 8 skipti 3-4 saman í hóp. Kennari getur svo skipt tímanum upp í styttri tíma í einkakennslu.
Kennari: Sif Jónsdóttir, skráning auglýst síðar
Keppnisnámskeið fyrir : unglinga, ungmenni og fullorðna.
Hefst 1. febrúar 2013. (kennsludagar: 1/2, 8/2, 15/2, 22/2, 1/3, 8/3, 15/3, 22/3
Kennt er á föstudögum frá kl. 14.00. Námskeiðið er átta skipti og eru þrír saman í hóp. Reiknað er með að kennari skipti svo tímanum upp í styttri tíma í einkakennslu. Þetta er sjálfstætt framhald af keppnisnámskeiði frá því í fyrra. Kennari: Sylvía Sigurbjörnsdóttir
Verð: 26.500
Hægt er að skrá sig hér, fyrstir koma, fyrstir fá. Skrá þarf sig á ákveðinn tíma og væri gott að þeir sem geta skráð sig sem fyrst á deginum geri það því það komast aðeins 15 á þetta námskeið.
(velja skráningu, námskeið, félag og svo fylla út reitina),“ segir á vefsíðu Fáks
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH