Hestaþing Sindra
Hestaþing Sindra verður haldið dagana 15. og 16. júní 2012 á Sindravelli við Pétursey:
Skráningargjöld fyrir ungmenna- A- og B- flokk er 2500 kr á 1. hest, 2000.- kr á 2. hest knapa, 1.500.- á 3. hest knapa, 1.000.- kr á 4. hest knapa og svo framv. ( aðgangseyrir er innifalinn fyrir knapa og fær hann afhent armband í miðasölu. Skráningargjöld verða samtals að hámarki kr 15.000.- á fjölskyldu þ.e. foreldra og börn alls). Einungis skuldlausir félagar hafa keppnisrétt á mótinu. Athugið: Keppnisröð er samkvæmt mótsskrá.
Boðið er uppá töltkeppni sem er opin öllum og keppt er til úrslita. Peningverðlaun í 1. sæti. Skráningargjald 3000 kr.
Eftir töltkeppnina fer fram keppni í 100 m skeiði með fljótandi starti. Skráningargjald 500.- kr. Einnig verður boðið uppá kappreiðar og eru þær opnar ollum. Skráningargjald í 150 m skeið kappreiðarnar er 2000 krónur á hest en 25.000 kr peningaverðlaun eru í boði. Skráningargjald í aðrar kappreiðar er 500 kr á hest.
Skráning er hjá:
Dóru á netfangið [email protected] og í síma 895-5738
Síðasti skráningardagur í hringvallargreina er á miðnætti þriðjudaginn 12. júní. Ekki verður tekið við skráningum eftir það. Hægt verður að skrá sig í kappreiðar líka á kappreiðadag. Við skráningu þarf að koma fram IS númer hest, nafn og kennitala knapa.
Skráningargjöld greiðist inn á 0317-13-302622. Kt. 540776-0169. Þar sem fram kemur nafn knapa.
Aðgangseyrir er kr 2.000.- fyrir tvo daga en 1.500.- fyrir einn dag. Frítt er fyrir 12 ára og yngri.
Dagskrá:
Föstudagur 15. júní:
Kl 10:30 Forkeppni í B- flokki gæðinga – úrtaka fyrir landsmót.
Kl 12:30 Hlé og undirbúningur fyrir hópreið
Kl 13:00 Hópreið, mótsetning
Kl 14:00 Forkeppni í polla-, barna-, unglinga-, ungmenna- og A- flokki.- úrtaka fyrir landsmót.
Kl 19:00 Töltkeppni
100 m skeið
Laugardagur 16. júní
Kl 11:00 úrslit í B- flokki, Polla-, barna-, unglinga-, ungmenna og A- flokki
Kl 14:30 Kappreiðar – opnar öllum
150 m skeið- 1. verðlaun 25.000 kr
300 m brokk
300 m stökk
250 m skeið
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH