Með Bs gráðu í reiðmennsku
Allt nám í reiðmennsku og reiðkennslu við Hólaskóla er nú komið á háskólastig. Sem þýðir að stúdentspróf er skilyrði fyrir inngöngu í skólann. Námið verður áfram þriggja ára nám. Víkingur Gunnarsson, deildarstjóri hrossabrautar Hólum, mun flytja erindi um breytingarnar á fundi Félgags tamningamanna, sem haldinn verður í kvöld á Kænunni í Hafnarfirði. Víkingur segir að markmiðið með þessum breytingum sé að gera námið hnitmiðaðra; að þeir sem útskrifist með Bs gráðu í reiðmennsku og reiðkennslu verði enn hæfari í faginu en áður. Reiðpróf verður áfram aðal inntökupróf inn í skólann.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson