Eftirsóknarverður skjöldur
Í A-flokkskeppni Hestamannafélagsins Sleipnis eru verðlaunin fyrir efsta sætið Sleipnirsskjöldurinn en hann var skorinn út af listamanninum Ríkharði Jónssyni og er einn sá elsti sem veittur er enn í dag.
Árið 1950 kom fyrst fram hugmyndin um Sleipnisskjöldinn sem verðlaun fyrir gæðingakeppni. Ríkarður Jónsson var fenginn til að skera út skjöld úr tré, og var útskorin hestsmynd á honum. Vinnst hann aldrei til eignar en hefur verið veittur árlega síðan í gæðingakeppni.
Úrslitin í A-flokknum voru æsispennandi í ár en svo fór að Sigursteinn Sumarliðason og Krókus frá Dalbæ sátu uppi sem sigurvegarar með einkunina 8,96 en þar á eftir komu Snæsól frá Austurkoti og Kiljan frá Steinnesi.
Hér eru úrslit A-flokksins:
A úrslit
Sæti Hross Knapi Aðildafélag eiganda Einkunn
1 Krókus frá Dalbæ Sigursteinn Sumarliðason Sleipnir 8,96
2 Snæsól frá Austurkoti Páll Bragi Hólmarsson Sleipnir 8,81
3 Kiljan frá Steinnesi Hans Þór Hilmarsson Sleipnir 8,78
4 Elding frá Laugardælum Bjarni Sveinsson Sleipnir 8,59
5 Gnótt frá Hrygg Sigurður Óli Kristinsson Sleipnir 8,56
6 Vaðall frá Halakoti Svanhvít Kristjánsdóttir Sleipnir 8,49
7 Þröstur frá Hvammi Ólafur Ásgeirsson Ljúfur 8,49
8 Húmi frá Votmúla 1 Freyja Hilmarsdóttir Sleipnir 8,44
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson