Landsmótsapp-

  • 22. júní 2012
  • Fréttir
Landsmótsapp-

Síminn er styrktaraðili Landsmóts hestamanna 2012 og hefur af því tilefni þróað nýtt farsímaforrit fyrir mótið.

 
„Appið, sem er bæði á íslensku og ensku, býður upp á dagskrá mótsins auk þess sem hægt er að fá upplýsingar um alla hestana sem taka þátt ásamt knöpum. 
 
Staðan í öllum riðlum mótsins er aðgengileg í appinu og er hægt með auðveldum hætti að fylgjast með árangri hesta og knapa í snjallsímanum. Í appinu er einnig kort af mótssvæðinu, almennar upplýsingar fyrir mótsgesti, myndskeið, viðtöl, fréttir af hestamannamótinu og Twitter.
 
Appið er í boði fyrir iPhone og Android,“ segir í frétt á vefsíðu landsmóts.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link