Lokakvöldið í Meistaradeild KS framundan – Ráslistar klárir
Mette mun reyna að verja titilinn í einstaklingskeppni mynd: Birgit Zimmermann
Lokakvöld Meistaradeildar KS í hestaíþróttum fer fram annað kvöld í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki þegar keppt verður í tölti (T1) og flugskeiði í gegnum höllina. Á morgun ræðst því hver það er sem sigrar einstakingskeppni deildarinnar og hvaða lið fer með sigur af hólmi í liðakeppni.
Það munar litlu á efstu liðum og ennþá eru næg stig í pottinum þar líkt og í einstaklingskeppninni. Á síðasta keppnistímabili var það Mette Mannseth sem vann einstaklingskeppnina og lið Þúfna sem sigraði í liðakeppni. Fyrir lokakvöldið er Mette í efsta sæti og lið Þúfna örfáum stigum ofar en lið Íbishóls í efsta sæti. Hægt er að skoða stöðuna með því að smella hér.
Margt góðra hrossa er að finna á ráslistum bæði í tölti og skeiði og ljóst að hart verður barist.
Hægt er að horfa á beina útsendingu hjá TindastólTV sem við hvetjum alla áhugamenn um hestaíþróttir að nýta sér. Blaðamenn Eiðfaxa munu a.m.k. sitja límdir við skjáinn.
TÖLT
- Þórdís Inga Pálsdóttir og Fjalar frá Vakurstöðum / HRÍMNIR
- Randi Holaker og Þytur frá Skáney / UPPSTEYPA
- Artemisia Bertus og Filma frá Tunguhálsi II / EQUINICS
- Jóhann Magnússon og Bogi frá Bessastöðum / LEIKNIR
- Elvar Einarsson og Muni frá Syðra-Skörðugili / STORM RIDER
- Þorsteinn Björn Einarsson og Fannar frá Hafsteinsstöðum / HOFSTORFAN
- Magnús Bragi Magnússon og Óskadís frá Steinnesi / ÍBISHÓLL
- Gísli Gíslason og Trymbill frá Stóra-Ási/ ÞÚFUR
- Sunna Sigríður Guðmundsdóttir og Krafla frá Hamarsey / EQUINICS
- Ylfa Guðrún Svafarsdóttir og Stórstjarna frá Akureyri/ HOFSTORFAN
- Guðmar Þór Pétursson og Sókrates frá Skáney / LEIKNIR
- Barbara Wenzl og Kná frá Engihlíð / ÞÚFUR
Hlé 5 mín - Þórarinn Eymundsson og Þrá frá Prestsbæ / HRÍMNIR
- Sigursteinn Sumarliðason og Skráma frá Skjálg / ÍBISHÓLL
- Ísólfur Líndal Þórisson og Sæhvönn frá Dvergasteinum / UPPSTEYPA
- Arndís Brynjólfsdóttir og Hraunar frá Vatnsleysu / STORM RIDER
- Mette Mannseth og List frá Þúfum / ÞÚFUR
- Vera Evi Schneiderchen og Ramóna frá Hólshúsum / EQUINICS
- Sigrún Rós Helgadóttir og Týr frá Jarðbrú / HOFSTORFAN
- Guðmar Freyr Magnússon og Sigursteinn frá Íbishóli / ÍBISHÓLL
- Fanney Dögg Indriðadóttir og Trygglind frá Grafarkoti / HRÍMNIR
- Bjarni Jónasson og Katla frá Ytra-Vallholti / STORM RIDER
- Hans Kjerúlf og Elsa frá Jaðri / UPPSTEYPA
- Konráð Valur Sveinsson og Gammur frá Aðalbóli / LEIKNIR
SKEIÐ
- Leynigestur / UPPSTEYPA
- Líney María Hjálmarsdóttir og Brattur frá Tóftum / HRÍMNIR
- Bergrún Ingólfsdóttir og Viðar frá Hvammi 2 / ÞÚFUR
- Guðmar Freyr Magnússon og Brimar frá Varmadal / ÍBISHÓLL
- Jóhann Magnússon og Fröken frá Bessastöðum / LEIKNIR
- Sigrún Rós Helgadóttir og Spyrna frá Þingeyrum / HOFSTORFAN
- Bjarni Jónasson og Hrappur frá Sauðárkróki / STORM RIDER
- Valdís Björk Guðmundsdóttir og Gnýr frá Brekku / EQUINICS
- Gísli Gíslason og Kalsi frá Þúfum / ÞÚFUR
- Þórarinn Eymundsson og Gullbrá frá Lóni / HRÍMNIR
- Elvar Einarsson og Segull frá Halldórsstöðum/ STORM RIDER
- Sigursteinn Sumarliðason og Krókus frá Dalbæ / ÍBISHÓLL
- Elvar Logi Friðriksson og Surtsey frá Fornusöndum / UPPSTEYPA
- Þorsteinn Björn Einarsson og Fossbrekka frá Brekkum III / HOFSTORFAN
- Konráð Valur Sveinsson og Kjarkur frá Árbæjarhjáleigu II / LEIKNIR
- Mette Mannseth og Vívaldi frá Torfunesi / ÞÚFUR
- Leynigestur / STORM RIDER
- Guðmar Þór Pétursson og Hrafnkatla frá Ólafsbergi / LEIKNIR
- Randi Holaker og Þórfinnur frá Skáney / UPPSTEYPA
- Daníel Gunnarsson og Eining frá Einhamri 2 / EQUINICS
- Freyja Amble Gísladóttir og Dalvík frá Dalvík / ÍBISHÓLL
- Leynigestur / HRÍMNIR
- Ylfa Guðrún Svafarsdóttir og Frekja frá Dýrfinnustöðum / HOFSTORFAN
- Sunna Sigríður Guðmundsdóttir og Ómur frá Litla-Laxholti
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH