Kynbótahross kynnt
Kynning kynbótahrossa sem ekki koma til verðlaunaveitingar var nú í fyrsta sinn reynt hér á Landsmóti. Þetta er góður vettvangur til að kynna hross þar sem einungis er verið að sýna það sem best er í hrossinu. Fram að þessu hefur fólk sem ekki situr yfir dómunum alla vikuna aðeins séð yfirlit þar sem knapar eru að laga það sem miður fór í dómnum og/eða verðlaunaveitingu þar sem einungis tíu efstu hestar koma fram. Oft eru mjög áhugaverð hross sem ekki eru meðal þeirra efstu og er þetta mjög góður vettvangur til að leyfa Landsmótsgestum að sjá þessi hross.
Talsvert var samt um það að hestar mættu ekki og er það að vissu leiti skiljanlegt því að þau voru sýnd í byrjun vikunnar og svo á yfirliti í gær. Það er því búið að vera mikið álag á mörgum þeirra og þau þá ekki sýnt sitt rétta andlit á kynningu sem þessari.
Þetta er frábær nýung sem vert er að halda áfram.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH