Fimmtíu dagar á Landsmót
Rétt er að vekja athygli á því að nú eru aðeins um 50 dagar í Landsmót hestamanna í Reykjavík og hver að verða síðastur að kaupa miða á mótið, í stúku og hjólhýsastæði með rafmagni á forsöluverði.
Forsölunni lýkur 15.maí og eftir það mun verðið hækka. Afsláttur til félagsmanna BÍ og LH munu þó haldast inni, sem og afslátturinn fyrir N1 korthafa.
Dagskrá mótsins er komin inná vefinn www.landsmot.is og þar er að finna ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir gesti og keppendur.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson
Vigdís Matthíasdóttir ráðin yfirþjálfari Hæfileikamótunar LH