Heldur Tuma ferskum – viðtal við Viðar

  • 20. júlí 2011
  • Fréttir
Heldur Tuma ferskum - viðtal við Viðar

Árangur Viðars Ingólfssonar og Tuma frá Stóra-Hofi á keppnisbrautinni undanfarin ár er glæstur og er Tumi fyrir löngu búin að sanna sig sem einn besti töltari landsins. Þrisvar hafa þeir hampað Íslandsmeistaratitlinum í tölti og fjórum sinnum hafa þeir orðið Reykjavíkurmeistarar í tölti. Þá hafa þeir unnið á Fjórðungsmóti, bæði á Austur- og Vesturlandi. Þeir sigruðu tölkeppni Landsmóts árið 2008 og urðu í öðru sæti nú í ár. Nú munu þessir fræknu vinir halda til Austurríkis og sína mátt sinn í töltkeppni Heimsmeistaramótsins.

Viðar segir það hafa verið erfitt að ákveða að sækjast eftir landsliðssæti með Tuma enda hafi hann unnið með Tuma lengi, eða síðan árið 2003. “En það var kannski rétti tíminn núna ef ég ætlaði að láta hann frá mér. En þetta verður mjög erfitt.”

Viðar segist hafa viðhaldið hefðbundinni þjálfun á Tuma að undanförnu og gefið honum góða hvíld þess á milli. “Ég þjálfa hann eins og fyrir önnur mót og reyni að halda honum ferskum og frískum. Undanfarið hefur verið stutt á milli móta og ég ákvað því að sleppa Íslandsmótinu og hvíla hann.”

Spennandi verður að sjá Viðar og Tuma etja kappi við þá allra sterkustu í heiminum en að loknu móti mun Tumi mun halda til nýrra eigenda í Svíþjóð.

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link