Hrossaræktin á Lundum II
Í 10. tölublaði Hesta og hestamanna, sem kemur út á fimmtudaginn, er stórviðtal við Sigbjörn Björnsson, hrossabónda á Lundum II. Hann og kona hans Ragna J. Sigurðardóttir hafa skipað sér í fremstu röð hrossaræktenda. Frá þeim hafa komið sex fyrstu verðlauna stóðhestar á síðastliðnum fimm árum, undan hryssunum Sóleyju frá Lundum II og Auðnu frá Höfða.
Í viðtalinu er rakin saga hrossaræktarbúsins og ættir þessara tveggja hryssna skoðaðar. Sóley er Kirkjubæjarhross að stærstum hluta en Kolkuóssættir eru fyrirferðamestar í frændgarði Auðnu. Fjórir elstu synir Auðnu er tamdir og sýndir og allir með há fyrstu verðlaun. Hún hefur þegar skipað sér í röð bestu kynbótamera.
Lesið um hrossaræktina á Lundum II í Hestum og hestamönnum. Hægt er að kaupa áskrift í síma 511-6622, eða á netinu. Smelltu HÉR.
Til minningar um Rúnar Geir Ólafsson