Álfur hylltur
Það var mögnuð stemmning í kvöld þegar Sleipnirsbikarinn var afhenntur. Eins og áður hefur komið farm þá var það Álfur frá Selfossi sem hlaut þessa eftirsóttustu viðurkenningu íslenskrar hrossaræktar hér á LM2012.
Eins og flestum er kunnugt þá er Álfur sonur tveggja heiðursverðlaunahrossa, þeirra Orra frá Þúfu og Álfadísar frá Selfossi. Hann vakti strax athygli 4.vetra gamall þá sýndur af Erlingi Erlingssyni, en nú í ár tekur hann ekki bara við Sleipnisbikarnumheldur er hann einnig í A-úrslitum í B-flokki. Sýningin á afkvæmum hans heppnaðist mjög vel og stóðu háhorfendur upp og hylltu þennan ævintýrahest.
Margareterhof er selt
Tillaga um einn varanlegan Landsmótsstað lögð fyrir landsþing
Dagur með hestatannlækni