Skemmtileg sýning hjá Adam.

  • 11. desember 2010
  • Fréttir
Skemmtileg sýning hjá Adam.

Hestamannafélagið Adam stóð fyrir sýningu á folöldum og ungum stóðhestum s.l. sunnudag. Dómari var hinn landskunni kynbótadómari Magnús Lárusson. Öllum gripunum voru gefnar einkunnir fyrir hina ýmsu þætti byggingar og hæfileika, og var framkvæmdin á dómunum bæði skemmtileg og fróðleg. Verðlaunuð voru 3 efstu folöldin í hvorum flokki, merar og hestar. Þá var útnefnd „mesta stjarnan“ á meðal folalda í eigu félaga í Adam. En þá útnefningu hlaut Pjakkur frá Þúfu.  Í flokki ungra stóðhesta bar hinn glæsilegi Skugga-Sveinn frá Þúfu sigur úr bítum og  hlaut hann hæstu einkunn bæði fyrir byggingu og hæfileika allra á sýningunni. En þess má geta að Pjakkur og Skugga-Sveinn eru sammæðra.

Úrslit urðu annars eftirfarandi:
Merfolöld:
1.       Forsetning frá Miðdal. F: Forseti frá Vorsabæ. M: Taug frá Miðdal.
2.       Sigurey frá Flekkudal. F: Sólbjartur frá Flekkudal. M: Villimey frá Flekkudal.
3.       Fjóla frá Morastöðum. F: Sporður frá Bergi.  M: Dagrún frá Morastöðum.

Hestfolöld:
1.       Pjakkur frá Þúfu. F: Hófur frá Varmalæk. M: Dögun frá Akranesi.
2.       Sigurþór frá Flekkudal. F:  Forseti frá Vorsabæ. M: Aþena frá Flekkudal.
3.       Sólon frá Þúfukoti. F: Orri frá Þúfukoti. M: Milljón frá ____________

Ungir stóðhestar:
1.       Skugga-Sveinn frá Þúfu. F: Dynur frá Hvammi. M: Dögun frá Akranesi
2.       Kliður frá Flekkudal. F: Glymur frá Flekkudal. M: Kvika frá Flekkudal.
3.       Álfakóngur frá Þúfu. F: Jósteinn frá Votmúla. M: Drottning frá Þúfu

Adam þakkar góða þátttöku, skemmtilegan dag og hvetur hrossaræktendur sem aðra hestamenn í Kjósinni að ganga í félagið. Það borgar sig að vera félagi.
Stjórn Adams.
 

Nýjasta tölublað

Tengdar greinar

Secret Link